

Goðsagan að seljast upp!
Þriðja prentun er komin! Jólin handan við hornið! Allt að gerast! Takk fyrir mig! Gleðileg jól! :)


Bóksalaverðlaunin 2015
Í gærkvöldi voru Bóksalaverðlaunin veitt fyrir árið 2015. Þín eigin goðsaga lenti í 3. sæti sem besta íslenska barnabókin. Þetta er auðvitað gríðarlegur heiður og ég er einstaklega upp með mér. Áfram barnabækur! :)


Goðsöguæði!
Þriðju vikuna í röð er Þín eigin goðsaga vinsælasta barnabók landsins skv. metsölulista Eymundsson. Þá er hún einnig vinsælasta barnabókin á lista Félags íslenskra bókaútgefanda, aðra vikuna í röð. Og til að gera þetta enn betra er hún líka ofarlega á almenna listanum á báðum stöðum (í fimmta sæti annars vegar og því þriðja hins vegar). Þetta er framar vonum og ég er í skýjunum. Takk allir! :)