top of page

VÉLMENNAÁRÁSIN (2016)

VARÚÐ!

Í ÞESSARI BÓK ERU
BRJÁLUÐ VÉLMENNI!


Þekkir þú einhvern sem vill helst hanga í tölvunni allan daginn? Þannig var Ævar vísindamaður þegar hann var ellefu ára. Það gekk meira að segja svo langt að hann skráði sig í sumarskóla til að þurfa ekki að vera úti í sólinni. En það reyndist vera stórhættuleg ákvörðun. Þetta var nefnilega enginn venjulegur skóli ...

Fyrsta sagan um bernskubrek Ævars vísindamanns, Risaeðlur í Reykjavík, sló rækilega í gegn og hér halda ævintýrin áfram. Með bókinni efnir Ævar Þór Benediktsson loforð við þúsundir barna um allt land sem tóku þátt í lestrarátaki hans og lásu samtals fimmtíu og fjögur þúsund bækur. Gerið svo vel, lestrarhestar, hér er ein bók í viðbót!

Bókin er prentuð með sérstöku letri sem auðveldar lesblindum að lesa

 

Teikningar: Rán Flyenring
Útgefandi: Forlagið, vorið 2016.

bottom of page