top of page

ÞITT EIGIÐ ÆVINTÝRI (2017)

VELDU ÞINN EIGIN ENDI!
BÓK SEM VIRKAR EINS OG TÖLVULEIKUR - ÞVÍ ÞÚ RÆÐUR HVAÐ GERIST!

 

Þitt eigið ævintýri er fjórða bókin í hinum sívinsæla Þín eigin-bókaflokki, sem hefur hlotið bæði Bókaverðlaun barnanna og Bóksalaverðlaunin.


Þitt eigið ævintýri er öðruvísi en aðrar bækur. Hér ert þú söguhetjan og ræður ferðinni. Sögusviðið er stórhættulegur ævintýraskógur, stútfullur af furðuverum og óvættum. Muntu enda í úlfsmaga eða læturðu glepjast af girnilegu piparkökuhúsi? Nær þyrnigerðið að krækja í þig eða viltu frekar klifra upp risastóra baunagrasið? Valið er þitt.

  • Yfir fimmtíu ólíkir endar.

  • Sögulok spanna allt frá eilífri hamingju til skyndilegs bana.

  • Ævintýralega góð skemmtun fyrir alla krakka.

 

Teikningar: Evana
Útgefandi: Forlagið, haustið 2017.

Risar.jpg
Ulfar.jpg
AevintyriÖfjorar.jpg
bottom of page