top of page

ÞITT EIGIÐ LEIKRIT: GOÐSAGA (2019)

Leikhus_is_Thitt_eigid_leikrit_Carousel_
Star
Star
Star
Star
SBH - MBL

Bækur Ævars Þórs Benediktssonar, þar sem lesandinn ræður því hvað gerist næst, hafa notið gífurlegra vinsælda meðal yngri lesenda. Nú er komið að þér að stjórna framvindunni í þínu eigin leikriti!

 

Söguheimurinn er norræna goðafræðin, full af hrikalegum hetjum og stórhættulegum skrímslum. Engar tvær sýningar verða eins, því áhorfendur ráða því hvað gerist! Muntu sigra Miðgarðsorminn eða gleypir hinn hræðilegi Fenrisúlfur þig? Ætlarðu að gerast barnapía fyrir Loka eða líst þér betur á að verja sjálfa Valhöll fyrir jötnum og hrímþursum? Ævintýraleg og spennandi sýning, þar sem allt getur gerst!

TILNEFND TIL TVEGGJA GRÍMUVERÐLAUNA:

BARNASÝNING ÁRSINS OG HLJÓÐMYND ÁRSINS.

 

Aldursviðmið: 6-12 ára.

Leikstjóri: Stefán Hallur Stefánsson

Tónskáld: Elvar Geir Sævarsson og Kristinn Gauti Einarsson

Hljóðmynd: Elvar Geir Sævarsson og Kristinn Gauti Einarsson

Lýsing: Magnús Arnar Sigurðarson.

Myndband: Ingi Bekk

Búningahönnuður: Ásdís Guðný Guðmundsdóttir

Leikmynd: Högni Sigurþórsson

Leikarar: Baldur Trausti Hreinsson, Snorri Engilbertsson, Hilmir Jensson, Lára Jóhanna Jónsdóttir og Sólveig Arnarsdóttir.

Frumsýnt í Þjóðleikhúsinu 31. janúar 2019.

STAFRÆN LEIKSKRÁ HÉR
 

bottom of page