top of page

SKÓLASLIT (2022)

Skolaslit_kapa.gif

SVO GÓÐ BÓK AÐ EINHVER ÁKVAÐ AÐ FÁ SÉR BITA!
 

Skólaslit er hrollvekja eftir Ævar Þór Benediktsson sem lesendur munu tæta í sig. Sagan birtist fyrst sem ógnvekjandi hrekkjavökudagatal en kemur nú út í bókarformi – lengri og ógeðslegri en áður – með myndlýsingum eftir Ara H.G. Yates.

 

Það er 31. október. Hrekkjavaka. Allir veggir skólans eru þaktir skrauti sem vekur hroll og kitlar ótta. Í fjarska ómar ómennskt öskur. Á gólfinu má sjá hálfan íþróttakennara og handan við hornið heyrist í draghöltum uppvakningaher. Hvað í ósköpunum gerðist? Og hvernig geta krakkarnir sem enn eru ekki orðnir að skrímslum komist lifandi út úr skólanum?

 

Verkefnið Skólaslit hlaut Vorvinda-viðurkenningu IBBY, Hvatningarverðlaun fræðsluráðs Reykjanesbæjar og var tilnefnt til Foreldraverðlauna Heimilis og skóla.

Teikningar: Ari H.G. Yates
Útgefandi: Forlagið, haust 2022.

bottom of page