top of page

​ÞÍN EIGIN SAGA 4: PIPARKÖKUHÚSIÐ (2019)

Piparkokuhusid_kapa.jpg
caged kids.jpg
living roomfin.jpg

​LÉTTLESTRARBÓK ÞAR SEM LESANDINN RÆÐUR FERÐINNI

Þín eigin saga: Piparkökuhúsið fjallar um girnilegt hús úr piparkökum og sælgæti, glaðlegan piparkökukarl, grimma norn, innilokaða fanga – og ÞIG.

ÞVÍ ÞÚ RÆÐUR HVAÐ GERIST!


Mundu bara að ef sagan endar illa má alltaf reyna aftur – það eru meira en tíu mismunandi sögulok!

Bækur Ævars Þórs Benediktssonar þar sem lesandinn ræður ferðinni hafa notið gríðarlegra vinsælda á undanförnum árum. Hér spinnur hann þráð úr bók sinni Þínu eigin ævintýri í stuttum köflum og aðgengilegum texta sem hentar byrjendum í lestri.


Bókin er prentuð með sérstöku letri sem auðveldar lesblindum að lesa.

 

Teikningar: Evana Kisa
Útgefandi: Forlagið, sumarið 2018.

Nornreid.jpg
Kokukall.jpg
Klosett.jpg
Heimaerbezt.jpg
bottom of page