top of page

​ÞÍN EIGIN HROLLVEKJA (2016)

VELDU ÞINN EIGIN ENDI!
BÓK SEM VIRKAR EINS OG TÖLVULEIKUR - ÞVÍ ÞÚ RÆÐUR HVAÐ GERIST!

 

Þriðja bókin í Þín eigin-bókaflokknum, sem hefur hlotið bæði Bókaverðlaun barnanna og Bóksalaverðlaunin.

Þín eigin hrollvekja er öðruvísi en aðrar bækur því hér ert þú söguhetjan og ræður ferðinni. Sögusviðið er dimmt og drungalegt kvöld, stútfullt af skrímslum og óvættum. Þú getur rekist á vampírur og varúlfa, uppvakninga og illa anda, brjálaðar brúður og tryllta trúða – allt eftir því hvað þú velur.

  • Yfir fjörutíu ólíkir endar.

  • Sögulok spanna allt frá eilífri hamingju til skyndilegs bana.

  • Hryllilega góð skemmtun fyrir alla krakka.

 

Teikningar: Evana
Útgefandi: Forlagið, haustið 2016.

 

bottom of page