top of page

HRYLLILEGA STUTTAR HROLLVEKJUR (2020)

kápa_hrollvekjur.jpg

ÞESSA BÓK LEST ÞÚ Á EIGIN ÁBYRGÐ!
 

Hryllilega stuttar hrollvekjur geymir tuttugu smásögur sem eru hver annarri hræðilegri. Hér má meðal annars lesa um vampírur, uppvakninga, drauga og skrímslin sem leynast undir rúminu þínu.

 

Metsöluhöfundurinn Ævar Þór Benediktsson var myrkfælinn þangað til hann varð sautján ára. Hér skrifar hann um allt sem hann var hræddur við. Ágúst Kristinsson var sá eini sem þorði að myndlýsa þessar hræðilegu sögur.

 

Teikningar: Ágúst Kristinsson.
Útgefandi: Forlagið, vorið 2020.

Strakur.jpg
bottom of page